Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.1.2018
Ólafsfjarðarmúli og Siglufjarðarvegur
B: Óvissustigi vegna snjóflóðahættu er lýst yfir í Ólafsfjarðarmúla. Siglufjarðarvegi hefur verið lokað vegna snjóflóðahættu.
Skilgreining á B: Óvissustig. Hætta talin á snjóflóðum en samt ekki talin ástæða til að loka. Stig 3 snjóflóðaspár. Það gæti hafa fallið lítið snjóflóð eða það er veður sem snjóflóð falla oft í, vindátt, snjókoma. Einnig byggt á mælum og öðrum athugunum á staðnum.
Færð og aðstæður
Á Suður- og Suðvesturlandi er hálka eða hálkublettir á flestum vegum. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og á Höfuðborgarsvæðinu.
Hálka eða snjóþekja er á vegum á Vesturlandi. Þungfært er á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja og eitthvað um skafrenning eða éljagang. Þungfært er á Ennisháls.
Það er hálka, snjóþekja og þæfingsfærð á vegum í Norðurlandi og snjókoma eða éljagangur. Dettifossvegur er lokaður.
Á Austurlandi er snjóþekja eða hálka á vegum og víða skafrenningur.
Hálkublettir eru með suðausturströndinni en greiðfært á nokkrum köflum.
Tjörublæðingar
Vegagerðin varar við tjörublæðingum á veginum milli Jökulsárlóns og Hafnar í Hornafirði.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru að mestu ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.