Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.1.2018

Magnús Ingi Jónsson 2018-01-18 7:10

Tjörublæðingar

Vegagerðin varar við tjörublæðingum á veginum milli Jökulsárlóns og Hafnar í Hornafirði.

Færð og aðstæður

Á suður- og suðvesturlandi er hálka eða hálkublettir á flestum vegum.

Á Vesturlandi er snjóþekja á vegum. Þæfingsfærð er í Hvammsfirði, á Skógarströnd, í Svínadal, á Mýrum og á Laxárdalsheiði. 

Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á vegum. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði. Þungfært er yfir Klettsháls og ófært yfir Þröskulda.

Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum, þó meiri snjóþekja vestantil.

Á Austurlandi er víðast hvar greiðfært en hálka á nokkrum fjallvegum. Greiðfært með suð-austurströndinni suður í Öræfi en nokkur hálka eða hálkublettir þar fyrir vestan.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru að mestu ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.