Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.12.2018

Sverrir Unnsteinsson 2018-12-14 21:35

Færð og aðstæður

Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir á fjallvegum. Víðast hvar greiðfært á láglendi.

Norðurland: Hálka eða hálkublettir á útvegum.

Norðausturland: Víða hálkublettir, þar á meðal á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Hálka er á Dettifossvegi og einhverjum útvegum.

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi

Framkvæmdir standa yfir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa lónsins. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.