Umferðarþjónusta - Tilkynning

Sigfríður Hallgrímsdóttir 2014-12-17 21:39

Hvalfjarðargöng

Búast má við minniháttar töfum í Hvalfjarðargöngum í nótt aðfaranótt 18.12. 2014 frá kl.00:30 og fram undir morgun vegna vinnu við vegbúnað.

Færð og aðstæður

Það er hálka og skafrenningur á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum en hálkublettir eða hálka á Reykjanesbraut. Hálka er annars  á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi.

Holtavörðuheiði er lokuð en hægt er að fara hjáleið um Laxárdalsheiði og Bröttubrekku. Hálka er á flestum leiðum á Vesturlandi en ófært á Fróðárheiði og þungfært yfir Heydal. Snjóþekja og skafrenningur er á Svínadal.

Á Vestfjörðum snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og víða éljagangur eða snjókoma.  Þæfingsfærð er milli Brjánslækjar og Kleifaheiðar og í Patreksfirði. Hálka er á Kleifaheiði en snjóþekja á Klettshálsi, Mikladal og Hálfdán.

Lokað er á Þverárfjalli en snjóþekja og snjókoma á flestum leiðum í Húnavatnssýslu.  Flughálka með stórhríð er frá Sauðárkróki að Hofsósi og í Hjaltadal.  Ófært er frá Hofsósi að Siglufirði og þungfært í Út -Blönduhlíð.

Nú er búið að opna Öxnadalsheiði en þar er þæfingsfærð og skafrenningur og áfram unnið að útmokstri.  Hálka og skafrenningur er á Víkurskarði og á flestum vegum á Norðurlandi eystra en þæfingsfærð á Hólasandi.

Hálka er á Fagradal, Fjarðarheiði og Oddskarði og hálka eða snjóþekja á vel flestum vegum á Austur- og Suðausturlandi.  Flughálka er á kafla undir Eyjafjöllum.

Siglufjarðarvegur

Vegna óvenju mikils jarðsig á Siglufjarðarvegi eru vegfarendur beðnir að gæta ýtrustu varúðar.

Hæðatakmörkun á Breiðholtsbraut við Norðlingaholt

Verið er að byggja göngubrú milli Seláss og Norðlingaholts og því hafa verið settar
upp hæðarslár á Breiðholtsbraut í báðar áttir sunnan hringtorgs við Rauðavatn.  
Fyrst er komið að hliði með skynjurum sem setja af stað blikkljós og flautur á seinna hliðinu.  Á seinna hliðinu eru slár yfir götuna í hæð 4,35 yfir malbiki. Hámarkshraði í gegnum vinnusvæði er 30 km/klst. Hægt er að aka hjáleið um Suðurlandsveg og Norðlingabraut.

Lokun vegna eldsumbrota

Almannavarnir hafa lokað  leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. Hægt er að sjá lokuð svæði hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Sjá staðsetningu hreindýra hér.

Akstur á hálendisvegum yfir veturinn

Hálendisvegir eru aðeins í þjónustu yfir sumarið og utan þess tíma er færð ekki könnuð. Á haustin þegar snjóað hefur til fjalla, eru vegirnir merktir ófærir í varúðarskyni þar sem miklar líkur eru á að færð hafi spillst. Yfir veturinn er akstur á hálendisvegum að jafnaði ekki óheimill, séu menn á nægilega stórum tækjum en aksturinn er á ábyrgð ökumanns. Mikilvægt er að fara ekki út í óþarfa tvísýnu og hafa í huga að víða er takmarkað símasamband.  Nú er akstur þó bannaður á ákveðnum vegum vegna eldsumbrotanna og eins er akstur á hálendisvegum bannaður á vorin þegar frost er að fara úr jörð, til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru.