Umferðarþjónusta - Tilkynning

Sveinfríður Högnadóttir 2014-11-26 8:59

Færð

Snjóþekja og éljagangur er á Sandskeiði og Hellisheiði en hálkublettir og éljagangur í Þrengslum. Snjóþekja og éljagangur er á Mosfells og Lyngdalsheiði. Hálkublettir eða snjóþekja er á flestum leiðum á Suðurlandi.

 Á Vesturlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum. Hálka er á Holtavörðuheiði og Vatnaleiði en snjóþekja og snjókoma  á Bröttubrekku.

Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði en snjóþekja á Þröskuldum, Kleifarheiði, Hálfdán, og Mikladal. Hálka eða hálkublettir eru á öðrum leiðum á Vestfjörðum. Ekki eru komnar upplýsingar um færð á Hrafnseyrarheiði en krapasnjór er á Dynjandisheiði.

Á Norðurlandi vestra er greiðfært þó er hálka eða hálkublettir í Húnavatnssýslum og hálka á Vatnsskarði en á Norðurlandi eystra eru hálkubletti inn til landsins en greiðært með ströndinni.

Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði en hálkublettir í Fagradal og á Öxi en annars að mestu greiðfært. Einnig er að mestu greiðfært með suðurströndin en hálkublettir eða krapi í Öræfasveit.

Hæðatakmörkun á Breiðholtsbraut við Norðlingaholt

Verið er að byggja göngubrú milli Seláss og Norðlingaholts og því hafa verið settar
upp hæðarslár á Breiðholtsbraut í báðar áttir sunnan hringtorgs við Rauðavatn.  
Fyrst er komið að hliði með skynjurum sem setja af stað blikkljós og flautur á seinna hliðinu.  Á seinna hliðinu eru slár yfir götuna í hæð 4,35 yfir malbiki. Hámarkshraði í gegnum vinnusvæði er 30 km/klst. Hægt er að aka hjáleið um Suðurlandsveg og Norðlingabraut.

Þungatakmarkanir

Vegna aurbleytu er ásþungi takmarkaður við 7 tonn á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði, og eins í Fossfirði, Reykjafirði og Trostansfirði.


Lokun vegna eldsumbrota

Almannavarnir hafa lokað  leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. Hægt er að sjá lokuð svæði hér.

Akstur á hálendisvegum yfir veturinn

Hálendisvegir eru aðeins í þjónustu yfir sumarið og utan þess tíma er færð ekki könnuð. Á haustin þegar snjóað hefur til fjalla, eru vegirnir merktir ófærir í varúðarskyni þar sem miklar líkur eru á að færð hafi spillst. Yfir veturinn er akstur á hálendisvegum að jafnaði ekki óheimill, séu menn á nægilega stórum tækjum en aksturinn er á ábyrgð ökumanns. Mikilvægt er að fara ekki út í óþarfa tvísýnu og hafa í huga að víða er takmarkað símasamband.  Nú er akstur þó bannaður á ákveðnum vegum vegna eldsumbrotanna og eins er akstur á hálendisvegum bannaður á vorin þegar frost er að fara úr jörð, til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Sjá staðsetningu hreindýra hér.