Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.12.2017
Færð og aðstæður
Greiðfært er á Reykjanesbraut og á höfuðborgarsvæðinu en annars er hálka eða hálkublettir í öllum landshlutum.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.