Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.6.2018
Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu
Í dag, fimmtudaginn 7. júní er
stefnt að því að fræsa og malbika hægri akrein og öxl
á Vesturlandsvegi í átt að Mosfellsbæ, frá hringtorgi við Korpúlfsstaðaveg að
hringtorgi við Skarhólabraut. Þrengt verður um eina akrein og búast má
við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi
yfir milli 06:00 og 15:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna
aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög
nálægt akstursbrautum.
Akstursbann á hálendisvegum
Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.