Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.5.2018

7.5.2018 10:31

Færð og aðstæður

Á Suður- og suðvesturlandi eru flestar leiðir greiðfærar.

Á Vesturlandi er víðast hvar greiðfært á láglendi en vetraraðstæður á fjallvegum. 

Vetraraðstæður eru einnig  á fjallvegum á Vestfjörðum en greiðfært er á flestum vegum á láglendi. Þæfingsfærð er um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar en unnið er að mokstri. Þungfært er í Árneshrepp en verið er að moka.

Það er greiðfært á Norður- og Austurlandi.

Næturlokanir í Breiðadals- og Botnsheiðargöngum

Vegna viðhaldsvinnu verða Breiðadals- og Botnsheiðargöng, milli Tungudals og Önundarfjarðar, lokuð á nóttunni, frá kl 22.00 til kl 07.00 næstu 3 vikur. Opnað verður á miðnætti í 10 mínútur.  

Athugið lokunin á einungis við um legginn milli Tungudals og Önundarfjarðar, opið verður á milli Tungudals og Súgandafjarðar.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.