Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.3.2018
Lokað
Lokað er um Fjarðarheiði og verður svo til morguns.
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðvesturlandi, og á Vesturlandi eru víðast aðeins hálkublettir eða vegir alveg auðir. Þó er hálka á Svínadal.
Hálka eða hálkublettir er allvíða á Vestfjörðum einkum á norðanverðum fjörðunum og í Djúpinu.
Á Norðurlandi eru vegir að miklu leyti auðir austur í Skagafjörð en þar fyrir austan hefur éljað og er víðast hálka eða snjóþekja.
Hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Austurlandi en þæfingur er á Fagradal, vegir með suðausturströndinni eru hins vegar mikið til auðir frá Höfn suður um.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.