Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.3.2018

7.3.2018 8:59

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðvesturlandi, og á Vesturlandi eru víðast aðeins hálkublettir eða vegir alveg auðir. Þó er hálka á Svínadal.

Vetrarfærð er á Vestfjörðum, víðast hvar nokkur hálka og sums staðar skafrenningur. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði eins og er. Verið er að opna Bjarnarfjarðarháls.

Á Norðurlandi eru vegir að miklu leyti auðir austur í Skagafjörð en þar fyrir austan hefur éljað og er víðast  hálka eða snjóþekja.

Eins er snjóþekja eða hálka á flestum vegum á Austurlandi en vegir með suðausturströndinni eru hins vegar mikið til auðir frá Höfn suður um.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.