Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.6.2018
Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu
Í dag, þriðjudaginn 5. júní er unnið við beygjuakrein frá Kringlumýrarbraut að Háaleitisbraut. Beygjuakreininni verður lokað og þrengt verður í eina akrein á Kringlumýrarbraut og Háaleitisbraut. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 til kl. 12:00.
Einnig verður unnið að því að fræsa og malbika akrein á Breiðholtsbraut, frá hringtorgi við Rauðavatn að gatnamótum við Brekknaás. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 11:00 til kl. 18:00.
Auk þess verða tvær akreinar fræstar á Reykjanesbraut, frá hringtorgi við Arnarnesveg í átt að Vífilsstöðum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 10:00 til kl. 16:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna
aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög
nálægt akstursbrautum.
Akstursbann á hálendisvegum
Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.