Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.5.2018

5.5.2018 13:27

Ábendingar frá veðurfræðingi

5. maí. kl. 12:00 -  Litur: Gulur

Til morguns  verður enn kalsasöm veðrátta með snjó- og slydduhryðjum um allt vestanvert landið.  Spáð er enn einum snjókomubakkanum úr suðvestri, með honum mun hríða á fjallvegum seint í nótt  og með SV 13-18 m/s.  Á láglendi verður víðast krapi og ekki hægt að útiloka snjó og hálku í morgunsárið.   

Færð og aðstæður

Á Suður- og suðvesturlandi eru flestar leiðir greiðfærar.

Á Vesturlandi er víðast hvar greiðfært á láglendi en vetraraðstæður á fjallvegum.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er víða á fjallvegum á Vestfjörðum en greiðfært eða hálkublettir á láglendi. Þæfingsfærð er á Dynjandisheiði.

Það er mikið til greiðfært á Norður- og Austurlandi. Hálkublettir eru á Öxnadalsheiði og á Mjóafjarðarheiði.

Næturlokanir í Breiðadals- og Botnsheiðargöngum

Vegna viðhaldsvinnu verða Breiðadals- og Botnsheiðargöng, milli Tungudals og Önundarfjarðar, lokuð á nóttunni, frá kl 22.00 til kl 07.00 næstu 3 vikur. Opnað verður á miðnætti í 10 mínútur.  

Fyrsta lokun verður í kvöld, laugardagskvöldið 5.maí.

Athugið lokunin á einungis við um legginn milli Tungudals og Önundarfjarðar, opið verður á milli Tungudals og Súgandafjarðar.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.