Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.3.2018

5.3.2018 21:59

Færð og aðstæður

Vegir eru að heita má greiðfærir á Suður- og Suðvesturlandi en hálkublettir eru á köflum á Snæfellsnesi og í Dölum, raunar hálka á Svínadal.
Vetrarfærð er á vegum á Vestfjörðum. Þar hefur víða éljað og bætt í vind svo að sums staðar er þæfingsfærð og  nokkuð blint. Þungfært er á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði.

Hálka er óveruleg á Norðurlandi vestra en frá Eyjafirði og austur á Austurland og Austfirði er víðast hvar hálka eða snjóþekja og allvíða éljagangur og skafrenningur.

Á Suðausturlandi er éljagangur og víða nokkur hálka eða snjóþekja.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 sums staðar verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn. Á fáeinum vegum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.