Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.12.2017
Vinna í Ártúnsbrekku og við Miklubraut
Í dag, þriðjudaginn 5. desember, er unnið við að taka niður öryggisgirðingar í Ártúnsbrekku og við Miklubraut. Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Færð og aðstæður
Það er hálka víða á Suðurlandi, síst þó á þjóðvegi 1.Hálka eða hálkublettir eru einnig á flestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum, raunar sums staðar snjóþekja þar sem éljar.
Á Norðurlandi er víðast hvar hált en við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum hefur éljað og þar er sums staðar snjóþekja á vegum.
Minni hálka er á Austur- og Suðausturlandi, þar eru víða aðeins hálkublettir eða jafnvel alveg greiðfært.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.