Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.12.2017
Færð og aðstæður
Á Suðurlandi er hálka en hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum.Á Vesturlandi og Vestfjörðum er hálka.
Á Norðurlandi er hálka. Með Norðausturströndinni er snjóþekja og éljagangur en þæfingur er á Hólaheiði og Hófaskarði.
Á Austurlandi er víða greiðfært á Héraði en hálka er á Möðrudalsöræfum og hálkublettir með ströndinni.
Á Suðausturlandi er að mestu greiðfært en hálka og hálkublettir eru frá Kvísker í Vík.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.