Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.3.2018

4.3.2018 16:19

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi eru vegir greiðfærir og einnig er greiðfært á Vesturlandi en þó eru hálkublettir á Holtavörðuheiði.

Hálkublettir eða hálka er víðast hvar á Vestfjörðum og víða éljagangur.  Snjóþekja og skafrenningur er á Klettshálsi, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir á fjallvegum. Snjóþekja og éljagangur er yst á Siglufjarðarvegi. 

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á Norðaustur- og Austurlandi og víða éljagangur. Skafrenningur er á flestum fjallvegum.

Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í sumum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.