Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.12.2017
Færð og aðstæður
Á Suðurlandi eru flestar aðalleiðir greiðfærar en hálkublettir á útvegum. Flughálka er norðan við Flúðir.Á Vesturlandi eru flestar aðalleiðir greiðfærar en hálkublettir eða hálka eftir því sem norðar dregur. Þoka er á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er snjóþekja eða hálka á flestum leiðum. Éljagangur er á sunnanverðum Vestfjörðum.
Á Norðurlandi eru hálkublettir eða hálka á flestum leiðum. Éljagangur er í Skagafirði og á Öxnadalsheiði.
Á Austur- og Suð-austurlandi er víðast greiðfært þótt hálkublettir eða hálka séu á köflum.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.