Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 3.7.2018

3.7.2018 11:58

Framkvæmdir

Í dag, þriðjudaginn 3. júlí er unnið að því að malbika akreinar á Njarðarbraut, frá hringtorg við Þjóðbraut að Hafnarbraut. Veginum verður lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 og 21:00.

Miðvikudaginn, 4. júlí er stefnt að því að fræsa og malbika vinstri akrein og öxl á Vesturlandsvegi í átt að Mosfellsbæ, frá hringtorgi við Úlfarfellsveg að hringtorgi við Korpúlfsstaðaveg. Þrengt verður um eina akrein og búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 06:00 til kl. 15:00.


Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði

Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti  til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

Vegna sérstakra aðstæðna er hlé á framkvæmdum í nokkra daga en næsta áætlaða lokun er aðfaranótt mánudagsins 9. júlí.

Hálendisvegir

Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.