Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 3.12.2017

3.12.2017 14:01

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru allvíða á Suðurlandi, jafnvel sums staðar hálka, en þó er greiðfært bæði á Hellisheiði og í Þrengslum.

Vegir eru víðast greiðfærir á Vesturlandi og á Vestfjörðum þótt hálkublettir séu á nokkrum fjallvegum og fáfarnari leiðum. Sama er að segja um Norðurland, allt austur í Eyjafjörð en í Þingeyjarsýslum er nokkuð meiri hálka.

Á Austur- og Suð-austurlandi er víðast greiðfært þótt hálkublettir séu á köflum.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.