Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 3.12.2017

3.12.2017 7:12

Færð og aðstæður

Það er hálka eða hálkublettir allvíða á Suðurlandi en þó er autt bæði á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi.

Vegir eru víðast greiðfærir á Vesturlandi og Vestfjörðum þótt hálkublettir séu á fáeinum fjallvegum og fáfarnari leiðum. Sama er að segja um Norðurland, allt austur í Eyjafjörð en í Þingeyjarsýslum er ívið meiri hálka eða jafnvel sums staðar snjóþekja.

Á Austur- og Suðausturlandi er víðast greiðfært þótt hálkublettir séu á köflum.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.