Umferðarþjónusta - Tilkynning - 29.7.2017
Ábendingar frá veðurfræðingi, laugardaginn 29. júlí kl. 08:15
Staðbundnir strengir ná sér upp í þeirri NA-átt sem nú
leikur um landið, einkum yfir miðjan daginn. Á vindur nær 15-18 m/s og með
hviðum allt að 25-30 m/s á Vesturlandi, einkum frá kl. 12 til 16. Sérstaklega í
Saurbæ í Dölum, á Laxárdalsheiði og í Reykhólasveit. Eins við Hafursfell á
sunnanverðu Snæfellsnesi og í Staðarsveit.
Eins verða varhugaverðir strengir yfir miðjan daginn við
Lómagnúp, við Kvísker og á Breiðamerkursandi og síðan við Hornafjörð og í
Lóni.
Malbikunarframkvæmdir
Á sunnudagskvöld 30. júlí og aðfaranótt mánudagsins 31. júlí er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Grindavíkurvegi, frá Reykjanesbraut og 700 m suður (kaflinn hefur lengst um 300 m). Annarri akreininni verður lokað í einu á meðan framkvæmd stendur yfir og verður umferðinni stýrt allan tímann. Umferðarhraði verður lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum frá kl. 20.00 til kl. 06:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akbrautum.
Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.
Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg). Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.
Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður á framkvæmdasvæðinu og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.
Vaðlaheiðarvegur
Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.