Umferðarþjónusta - Tilkynning - 2.7.2018
Framkvæmdir
Þriðjudaginn 3. júlí er stefnt að því að malbika akreinar á Njarðarbraut, frá hringtorg við Þjóðbraut að Hafnarbraut. Veginum verður lokað og
hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 og 18:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát
við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög
nálægt akstursbrautum.
Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði
Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.
Hálendisvegir
Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.