Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 2.7.2018

2.7.2018 9:44

Framkvæmdir

Hætt hefur verið við malbikun á Njarðarbraut, frá hringtorgi við Þjóðbraut að Hafnarbraut.

Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði

Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti  til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

Næsta lokun verður aðfaranótt þriðjudagsins 3. júlí.

Hálendisvegir

Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.