Umferðarþjónusta - Tilkynning - 2.6.2017
Reykjanesbraut við Krýsuvíkurveg
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst.
Vegna vinnu við sprengingar á framkvæmdasvæðinu þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar við vinnusvæðið.
Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað tímabundið, milli Rauðhellu og hringtorgs við Hraunhellu / Hringhellu. Merkt hjáleið er um Rauðhellu og Hringhellu á meðan lokun Krýsuvíkurvegar varir (u.þ.b. til 10 júní).
Umferðartafir á Hringvegi
Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir. - Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.
Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00 fram til 30. júní vegna framkvæmda.Hálendisvegir að vori og framan af sumri
Þegar frost
er að fara úr jörð getur jarðvegur orðið mjög gljúpur og viðkvæmur.
Þetta á m.a. við um lélega malarvegi og frumstæða slóða líkt og á
hálendinu. Akstur er þá bannaður til að koma í veg fyrir skemmdir, bæði á
vegunum sjálfum og landi og gróðri sem geta skemmst illa ef ekið er út
fyrir veg. Akstursbann nú víða á hálendinu.Lokun Eyravegar á Selfossi
Gatnamót Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi eru lokuð vegna lagnaframkvæmda. Umferð er vísað hjáleið um Tryggvagötu meðan á framkvæmdum stendur. Vonast er til að vinnu ljúki í fyrstu viku júní. Sjá nánar hér.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.