Umferðarþjónusta - Tilkynning - 24.4.2017
Færð og aðstæður
Það er greiðfært á Suður- og Vesturlandi.
Á Vestfjörðum eru sumstaðar hálkublettir á heiðum og hálsum en greiðfært að mestu á láglendi. Hálka er á Hrafnseyrarheiði en
Dynjandisheiði er enn ófær en unnið er að mokstri. Snjóþekja er norður í Árneshrepp.
Vegir á Norðurlandi vestra eru víðast auðir en á Norðurlandi eystra er hálka, hálkublettir á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og hálkublettir á Hófaskarði.
Það er að mestu greiðfært á Austurlandi en hálka og skafrenningur er á Fjarðarheiði. Hvassviðri er einnig austanlands.
Vegir eru greiðfærir á Suðausturlandi en sumstaðar hvasst.
Hvalfjarðargöng næturlokanir
Vegna viðhalds og þrifa verða göngin lokuð:
Frá kl. 22 að kvöldi mánudags 24. apríl til kl. 6 að morgni þriðjudags 25. apríl.
Frá miðnætti að kvöldi þriðjudags 25. apríl til kl. 6 að morgni miðvikudags 26. apríl.
Frá miðnætti að kvöldi miðvikudags 26. apríl til kl. 6 að morgni fimmtudags 27. apríl.
Frá miðnætti að kvöldi fimmtudags 27. apríl til kl. 6 að morgni föstudags 28. apríl
Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar
Vinna er hafin við gerð
mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.
Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.
Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.
Lokun Eyravegs á Selfossi
Lokun á þjóðvegi nr. 34 við gatnamót Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi
Sjá nánar hér.
Þungatakmarkanir
Þeim sérstöku ásþungatakmörkunum sem hafa verið í gildi á Vesturlandi og á Vestfjörðum að undanförnu verður aflétt þriðjudaginn 25. apríl kl. 08:00. Þetta á þó ekki við 7 tonna ásþunga á Bíldudalsvegi (63) milli Bíldudals og Dynjandisheiðar og Vestfjarðavegar (60) milli Flókalundar og Þingeyrar.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.