Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.3.2017

23.3.2017 20:06

Ábendingar frá veðurfræðingi

Í kvöld snýst í hvassa suðvestanátt með éljum og takmörkuðu skyggni til fjalla á vestanverðu landinu.

Færð og aðstæður

Hálka og éljagangur er á Hellisheiði og Mosfellsheiði. Hálkublettir og éljagangur eru á Reykjanesbraut og mjög víða á Suðurlandi.

Á Vesturlandi eru hálkublettir á fjallvegum á Snæfellsnesi en hálka á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku.

Á Vestfjörðum er þæfingur á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum, hálka eða hálkublettir á öðrum fjallvegum en greiðfært að mestu á láglendi.

Komin er hálka eða hálkublettir mjög víða á Norðurlandi vestra. Norðaustanlands eru hálkublettir á nokkrum leiðum og hálka á Hólasandi. Hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Greiðfært er að mestu með suðausturströndinni.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1 felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá kl. 12:00 föstudaginn 24. mars, á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.