Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.3.2017
Færð og aðstæður
Það er hálka er á Sandskeiði en snjóþekja og skafrenningur á Hellisheiði, Þrengslum og á Mosfellsheiði. Nú snjóar á Suðurlandi og þar er snjóþekja á flestum leiðum allt austur að Þjórsá.
Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum en þæfingsfærð og skafrenningur á Bröttubrekku og snjóþekja á Holtavörðuheiði. Ófært er á Fróðárheiði. Það er hvasst undir Hafnarfjalli og á norðanverðu Snæfellsnesi.
Hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru á vegum á Vestfjörðum og víða skafrenningur á fjallvegum. Þungfært er eins og er á Steingrímsfjarðarheiði og þæfingsfærð á Klettshálsi. Ófært er á Kleifaheiði.
Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Greiðfært er að mestu með suðausturströndinni en þó eru hálkublettir eða snjóþekja á vegum fyrir vestan Öræfasveit.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.