Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.2.2018
Færð og aðstæður
Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á Suð-vestanverðu landinu. Þæfingsfærð er á Kjósarskarði og Þingvallavegi en ófært á Lyngdalsheiði en þar er verið að moka.
Á Vesturlandi er snjóþekja, hálka eða hálkublettir. Þæfingsfærð er á milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar, í Svínadal og á Bröttubrekku. Ófært er á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er víða Snjóþekja, hálka eða hálkublettir. Þungfært er Steingrímsfjarðarheiði, Þröskulda og Hjallaháls en þæfingsfærð á Mikladal. Ófært er á Klettsháls. Verið er að moka flestar leiði og koma upplýsing inn síðar.
Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Norðurlandi vestra.
Á Norðaustur- og Austurlandi er víðast hvar greiðfært en hálkublettir yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Fagradal, Vatnsskarð eystra og Fjarðarheiði. Einnig er greiðfært með suðausturströndinni að Höfn en þar fyrir vestan eru hálkublettir eða hálka.
Skemmdir á slitlagi
Í því veðurfari sem hefur gengið yfir að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Grjóthrun í Hvalnesskriðum
Vegna mikillar úrkomu hefur verið töluvert grjóthrun í Hvalnesskriðum og eru vegfarendur beðnir að fara varlega.Vatnavextir í Fáskrúðsfirði
Vatn flæðir yfir veg á þremur stöðum í sunnanverðum Fáskrúðsfirði og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og fara varlega.Þungatakmarkanir
Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.