Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 2.3.2018

2.3.2018 16:31

Færð og aðstæður

Á Suður- og Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en eitthvað er um hálkubletti.

Vegir á Vestfjörðum eru greiðfærir á láglendi en hálkublettir eru á fjallvegum. Hálka er á Þröskuldum og snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði. Hálkublettir eru á kafla á Innstrandavegi.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Þverárfjalli og á Vatnsskarði og eitthvað er um hálkubletti í Skagafirði. Norðaustanlands er hálka, hálkublettir eða snjóþekja og éljagangur í Eyjafirði og á norðausturhorni landsins.

Það er víða hálka eða snjóþekja á Austurlandi og skafrenningur á nokkrum fjallvegum.

Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir á kafla við Kvísker.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í sumum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Í dag föstudaginn 2. mars er hópur hreindýra nálægt vegi við Ármótasel, ofan Skjöldólfsstaðahnjúks.