Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.6.2017
Hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon
Nú stendur yfir hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon þar sem hjólað er réttsælis hringinn í kringum landið. Flestir eru nú á Norðausturlandi og stefna austur. Hjólað er að mestu á Hringveginum en þó verður farið um Öxi og á Suðurlandi verður farið frá Selfossi niður í Ölfus og svo um Þrengslin. - Mikilvægt er að vegfarendur sýni sérstaka aðgát og tillitsemi meðan svo margt hjólafólk er á ferðinni.
Malbikun á Reykjanesbraut
Í dag, fimmtudaginn 22. júní, er verið að fræsa og malbika hægri öxl á Reykjanesbraut hjá Kúagerði, í átt að Keflavík. Akreininni er lokað á meðan, umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum til kl. 18:00. - Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg
vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á
Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna vinnu við
sprengingar á framkvæmdasvæðinu þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman
tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.
Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað tímabundið, milli Rauðhellu og hringtorgs við Hraunhellu / Hringhellu. Merkt hjáleið er um Rauðhellu og Hringhellu á meðan lokun Krýsuvíkurvegar varir (u.þ.b. til 24 júní).
Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg). Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017. - Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðin.
Umferðartafir á Hringvegi
Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir. - Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.
Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00 fram til 15. júlí vegna framkvæmda.