Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.5.2018

22.5.2018 8:20

Frá veðurfræðingi 22. maí kl. 07:30

Litur: Gulur

Hvessir í dag suðvestan- og vestanlands og vindur verður í hámarki á milli kl. 14 og 17.  SA-stormur  þegar verst lætur og hviður allt að 35 m/s m.a. undir Hafnarfjalli og á norðanverðu Snæfellsnesi.  Eins á utanverðu  Kjalarnesi og í  Hvalfirði. Rigning, einnig á fjallvegum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er beinlínis lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.