Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.4.2017
Færð og aðstæður
Það er að mestu greiðfært á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir eru á Hellisheiði og á fjallvegum á Vesturlandi s.s. á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku.
Á Vestfjörðum eru víða hálka eða hálkublettir á heiðum og hálsum en greiðfært á láglendi. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og
Dynjandisheiði en vegna snjóflóðahættu verður ekki mokað fyrr en eftir helgi.
Vegir á Norðurlandi vestra eru nú óðum að verða auðir en þó eru hálkublettir og éljagangur á Þverárfjalli og Vatnsskarði. Hálkublettir og éljagangur er á Öxnadalsheiði. Á Norðausturlandi er greiðfært í Eyjafirði en þar fyrir austan eru hálkublettir eða snjóþekja á nokkrum köflum.
Það er að mestu greiðfært á Austurlandi en þó eru hálkublettir á Fjarðarheiði og Oddsskarði. Einnig er greiðfært með suðausturströndinni.
Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar
Vinna er hafin við gerð
mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.
Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.
Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir á köflum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Víðast er um að ræða 10 tonna ásþungatakmarkanir en þó er ásþungi takmarkaður við 7 tonn á Bíldudalsvegi (63) frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi (60) við Helluskarð og á Vestfjarðavegi (60) frá Flókalundi að Þingeyri.Borgarfjarðarbrú
Hlé var gert á vinnu við Borgarfjarðarbrú um páskana og verða báðar akreinar opnar til 23. apríl. Athugið að framkvæmdum er ekki lokið og akreinar eru ekki í fullri vegbreidd. Umferðarstýring er á gulu blikki og hraði takmarkaður við 30 km/klst. Vinna hefst að nýju mánudaginn 24. apríl.