Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.2.2018
Ábendingar frá veðurfræðingi, 22. feb. kl. 09:45.
Myndarlegir éljabakkar nálgast úr vestri og með þeim hvessir með S 15-20 m/s. Einkum V-lands, en einnig SV-lands má reikna með að blint verði í hryðjunum frá því um hádegi. SV-lands hlánar síðan í kvöld.
Færð og aðstæður
Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og á Höfuðborgarsvæðinu. Snjóþekja er á Hellisheiði og Þrengslum og hálka eða snjóþekja á flestum leiðum á Suðurlandi og víða éljagangur og skafrenningur. Þæfingsfærð er á Mosfellsheiði, Kjósarskarði og Krýsuvíkurvegi.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum er snjóþekja, hálka eða hálkublettir og éljagangur nokkuð víða.
Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Norðurlandi vestra og skafrenningur á fjallvegum.
Á Norðaustur- og Austurlandi er víðast hvar greiðfært. Einnig er greiðfært með suðausturströndinni að Lómagnúp en þar fyrir vestan eru hálkublettir.
Skemmdir á slitlagi
Í því veðurfari sem hefur gengið yfir að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Grjóthrun í Hvalnesskriðum
Vegna mikillar úrkomu hefur verið töluvert grjóthrun í Hvalnesskriðum og eru vegfarendur beðnir að fara varlega.Vatnavextir í Fáskrúðsfirði
Vatn flæðir yfir veg á þremur stöðum í sunnanverðum Fáskrúðsfirði og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og fara varlega.Þungatakmarkanir
Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.