Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.9.2018
Færð
Snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum og á Vesturlandi og einnig á nokkrum láglendisvegum. Hálka á Steingrímsfjarðarheiði. Snjóþekja er á Strandarvegi.
Hálkublettir eru á Vatnsskarði, Öxnadalsheiði, Héðinsfirði og í Ólafsfjarðarmúla. Krapi og éljagangur er á Siglufjarðarvegi. Krapi er á Víkurskarði, Fljótsheiði og Mývatnsheiði. Þæfingsfærð er á Hólasandi.
Krapi er á Mývatnsöræfum en þæfingsfærð og snjókoma er á Möðrudalsöræfum og á Fjarðarheiði. Krapi á Fagradal og Breiðdalsheiði en þungfært er Mjóafjarðarheiði.
Mjög hvasst er á Norðausturlandi.
Hálendi
Búast má við að færð gæti farið að þyngjast á hálendis vegum og þá sérstaklega á norðanverðu landinu.Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.