Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.9.2018
Færð
Snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og á nokkrum láglendisvegum einnig en hálka á Steingrímsfjarðarheiði. Snjóþekja er á Strandarvegi.
Hálkublettir eru á Vatnsskarði, Öxnadalsheiði, Héðinsfirði, í Ólafsfjarðarmúla og á Víkurskarði. Krapi og éljagangur er á Siglufjarðarvegi. Krapi er á Fljótsheiði og Mývatnsheiði. Þæfingsfærð er á Hólasandi.
Þæfingsfærð og snjókoma er á Möðrudalsöræfum og á Fjarðarheiði en krapi á Fagradal og Breiðdalsheiði.
Mjög hvasst er á Norðausturlandi.
Hálendi
Búast má við að færð gæti farið að þyngjast á hálendis vegum og þá sérstaklega á norðanverðu landinu.Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.