Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.2.2018
Áætlaðar lokanir miðvikudaginn 21. febrúar
Hér í viðhenginu að neðan má sækja skjal þar sem koma fram áætlaðar lokanir vegna veðurs fyrir miðvikudaginn 21. febrúar 2018.
Ábendingar frá veðurfræðingi kl. 11:00
Litur: AppelsínugulurVakin er athygli á veðurhvelli sem spáð er að gangi hratt yfir landið í fyrramálið. Suðvestanlands á milli kl. 7 og 10 með allt að 23-28 m/s og með snjókomu og slæmu skyggni í efri byggðum og austur frá Reykjavík. Hviður allt að 40 m/s á Reykjanesbraut um kl. 8 og fram yfir kl. 10 á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli.
Lokað
Vegurinn um Hraunsfjörð á Snæfellsnesi er lokaður um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps.Færð og aðstæður
Greiðfært er á Reykjanesbraut og á Höfuðborgarsvæðinu.
Á Suðvestur- og Suðurlandi er hálka, hálkublettir og mjög víða er éljagangur.
Á Vesturlandi er víðast hvar hálka, hálkublettir og éljagangur í uppsveitum Borgarfjarðar.
Á Norðurlandi er víða éljagangur en fremur lítið um hálku nema í Húnavatnssýslum. Snjóþekja er á Öxnadalsheiði.
Það er víða hált eða hálkublettir á Austurlandi. Með suðausturströndinni er hringvegurinn að mestu auður.
Ófært við Norðlingafljót
Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót
þar sem vatn flæðir yfir veg.
Þungatakmarkanir
Ásþungi
Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.