Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.1.2019
Ábending frá veðurfræðingi
20. jan. kl. 10:00 - Gul viðvörun
Skil með SA- hvassviðri og úrkomu fara hratt NA yfir landið í kvöld og nótt. Hlánar á láglendi á Höfuðborgarsvæðinu, en á Hellisheiði og öðrum fjallvegum suðvestanlands er spáð hríð, skafrenningi og slæmu skyggni frá kl. 18 og 21. Eins í kvöld í uppsveitum Suðurlands.
Færð og aðstæður
Óvissustig
Búið er að lýsa yfir óvissustigi á Sandskeiði, Hellisheiði og Þrengslum og fólk beðið að vera ekki á ferðinni.
Höfuðborgarsvæðið: Hálkublettir eru á öllum stofnbrautum.
Suðvesturland: Hálkublettir er á Reykjanesbraut og á Grindavíkurvegi, hálka og
skafrenningur er á Hellisheiði, Sandskeiði og Þrengslum og þar hefur verið lýst
yfir óvissustigi. Hálka eða snjóþekja á öðrum leiðum.
Vesturland: Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði en hálka og snjóþekja á
öðrum leiðum og þó nokkur éljagangur. Skafrenningur er á Vatnaleið og lokað á Fróðárheiði.
Vestfirðir: Snjóþekja og hálka og eitthvað um éljagang.
Norðurland: Vetrarfærð, snjóþekja, hálka eða hálkublettir og eitthvað um
éljagang.
Norðausturland: Hálka og töluverður skafrenningur. Þungfært er á Hólasandi.
Austurland: Hálka er á Héraði. Hálka og skafrenningur er á Fjarðarheiði og
Vatnsskarði eystra en hálkublettir eru með ströndinni.
Suðausturland: Hálka, hálkublettir og eitthvað um éljagang.
Suðurland: Hálka, snjóþekja og éljagangur.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikka Hringveginn er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.
Á afmörkuðum svæðum við Varmá og austur fyrir gatnamót að
Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við gatnamót Hringvegar. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæði. - Áætluð verklok eru 1. mars nk.
Fjaðrárgljúfur lokað
Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/