Umferðarþjónusta - Tilkynning - 20.1.2019
Lokað
Búið er að loka veginum um Hafnarfjall, Kjalarnes vegna veðurs og eins er lokað yfir Hellisheiði ,Þrengsli, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði og ekkert ferðaveður.
Ábending frá veðurfræðingi
20. jan. kl. 10:00 - Gul viðvörun
Skil með SA- hvassviðri og úrkomu fara hratt NA yfir landið í kvöld og nótt. Hlánar á láglendi á Höfuðborgarsvæðinu, en á Hellisheiði og öðrum fjallvegum suðvestanlands er spáð hríð, skafrenningi og slæmu skyggni frá kl. 18 og 21. Eins í kvöld í uppsveitum Suðurlands.
Færð og aðstæður
Höfuðborgarsvæðið:
Hálka er á öllum stofnbrautum.
Suðvesturland: Hálkublettir eru á Grindavíkurvegi. Lokað er á Hellisheiði,
Sandskeiði, Þrengslum, Mosfellsheiði, Lyngdalsheiði og Kjalarnesi. Hálka eða
snjóþekja á öðrum leiðum. Hálka og mjög hvasst er á Suðurstrandarvegi og
flughálka á kafla.
Vesturland: Hálka er á Holtavörðuheiði en hálka og snjóþekja á öðrum leiðum
og þó nokkur éljagangur. Þæfingsfærð og snjókoma er á Bröttubrekku. Mjög slæmt
veður er á Snæfellsnesi og ekkert ferðaveður. Lokað er á Fróðárheiði.
Vestfirðir: Snjóþekja og hálka og eitthvað um éljagang.
Norðurland: Vetrarfærð, snjóþekja, hálka eða hálkublettir og eitthvað um
éljagang.
Norðausturland: Hálka á öllum leiðum. Þungfært er á Hólasandi.
Austurland: Hálka eða hálkublettir á öllum leiðum.
Suðausturland: Hálka, hálkublettir og eitthvað um éljagang.
Suðurland: Hálka, snjóþekja og éljagangur.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikka Hringveginn er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.
Á afmörkuðum svæðum við Varmá og austur fyrir gatnamót að
Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við gatnamót Hringvegar. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæði. - Áætluð verklok eru 1. mars nk.
Fjaðrárgljúfur lokað
Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/