Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 1.8.2017

1.8.2017 9:50

Malbikunarframkvæmdir

Þriðjudaginn 1. ágúst er stefnt að því að malbika Borgarbraut í Borgarnesi. Einni akrein verður lokað í einu á meðan framkvæmd stendur yfir og verður umferðinni stýrt allan tímann. Umferðarhraði verður lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 18:00.

Frá þriðjudagskvöldi 1.ágúst til miðvikudagsins 2.ágúst er stefnt að því að malbika á Grindavíkurvegi, við Seltjörn. Annarri akreininni verður lokað á meðan og verður umferðinni stýrt. Umferðarhraði verður lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við umferðartöfum frá kl. 20:00 á þriðjudagskvöldi til kl. 06:00 á miðvikudagsmorgni. 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akbrautum.

Krýsuvíkurvegur við Reykjanesbraut

Vegna malbikunarframkvæmda verður lokað fyrir umferð um syðri akbraut Reykjanesbrautar milli Krýsuvíkurvegar og Ásbrautar miðvikudaginn 2. ágúst og fimmtudaginn 3. ágúst frá kl. 19.00 hvort kvöld og fram á nótt. Merkt hjáleið fyrir umferð er um Vallahverfi í Hafnarfirði.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður á framkvæmdasvæðinu og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér