Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.7.2018
Umferðarstýring á Þingvöllum
Upplýsingar um umferðarstjórnun vegna hátíðarfundar Alþingis 18. júlí á Þingvöllum, sjá nánar hérMalbikun
Þriðjudaginn 17. júlí er stefnt að því að malbika innstu akrein í Ártúnsbrekku, frá Höfðabakkabrú og niður að mislægum gatnamótum við Réttarholtsveg. Þrengt verður í eina akrein, áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir fræa kl. 09:00 til kl. 19:00.
Á þriðjudagskvöld og nótt 17.-18. júlí er stefnt að því að
malbika 3,7 km langan kafla á Akrafjallsvegi. Veginum verður lokað í báðar áttir og allri umferð beint norðan við
Akrafjall og í gegnum Akranes.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 19:00 til kl. 07:00.
Verið er að malbika á milli
Fellabæjar og Egilsstaða í dag 17. júlí og á morgun 18. júlí, umferða er stýrt
um svæðið.
Miðvikudaginn 18. júlí er stefnt að því að malbika Reykjanesbraut í
Keflavík, á milli hringtorga við Garðskagaveg
og Þjóðbraut. Umferð á leið til flugvallarins fer framhjá framkvæmdasvæðinu en
umferð frá flugvellinum verður beint í gegnum bæinn. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 08:00 til kl. 20:00.
Framkvæmdir, vegavinna og umferð
Það hefur stundum verið gagnrýnt hve mikið sé um hvers kyns framkvæmdir og viðhald á vegakerfinu yfir hásumarið, einmitt þegar sumarfrí og ferðamennska standa sem hæst. Við íslenskar aðstæður þarf að nýta þann árstíma þegar helst er hægt að athafna sig en hitt er rétt að vinna á vegum fer illa saman við mikla umferð. Þess vegna er ákaflega brýnt að vegfarendur virði allar merkingar. Hraðatakmarkanir eru forsenda þess að hægt sé að tryggja öryggi starfsmanna og vegfarenda, auk þess að fara betur með bíla og tæki.Lokun á Ölfusárbrú við Selfoss
Vegna viðgerða verður brúin yfir Ölfusá lokuð í viku um miðjan ágúst. Sjá nánar hérViðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.