Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.8.2017

16.8.2017 8:13

Framkvæmdir

Nú er að hefjast lokaáfanginn við gólfviðgerð á Borgarfjarðarbrú. Umferð verður stýrt með ljósum. Verkinu á að ljúka 14. nóvember.

Í dag  verður Orkubú Vestfjarða með framkvæmdir við veg hjá Brekkuvöllum á Barðaströnd.  Vegurinn lokast ekki en önnur akreinin getur verið lokuð annað slagið.

Verið er að gera tvö hringtorg á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Umferð hefur verið hleypt á hringtorgið við Aðalgötu en Aðalgata verður lokuð fram í byrjun september. Ökumönnum er bent á hjáleið yfir á Þjóðbraut eða að aka um Garðaveg.  Verkinu í heild á að ljúka í september.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.

Verið er að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér