Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.1.2019

16.1.2019 12:21

Færð og aðstæður

Höfuðborgarsvæðið: Hálkublettir á flestum leiðum.

Suðvesturland: Hálka er í Þrengslum, á Hellisheiði en hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum. Greiðfært er á Reykjanesbraut og á Kjalarnesi. Þæfingsfærð er á Grafningsvegi efri.

Vesturland: Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er á öllum leiðum.

Vestfirðir: Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er á öllum leiðum.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja á vegum. Éljagangur er á Tröllaskaga og í Eyjafirði.

Norðausturland: Víða snjóþekja eða hálka og éljagangur eða skafrenningur. Þungfært er á Hólasandi.  

Austurland: Snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum og éljagangur. Skafrenningur er á fjallvegum. Ófært er á  Breiðdalsheiði og Öxi. Miklar hviður eru í Hamarsfirði.

Suðausturland: Hálka er frá Höfn og í Vík og skafrenningur við Kvísker.

Suðurland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum.  

Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/