Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Á Suðurlandi er að mestu greiðfært en þó eru hálkublettir á nokkrum köflum, einkum í uppsveitum.
Það er nokkur hálka eða hálkublettir á Vesturlandi og á Vestfjörðum er einnig víða hálka eða hálkublettir á fjallvegum en mikið autt á láglendi.
Á Norður- og Austurlandi eru hálkublettir nokkuð víða og hálka á Dettifossvegi og í Bárðardal. Greiðfært er með suðausturströndinni.
Múlagöng
Vegna vinnu í Múlagöngum dagana 7. mars til 8. mars má reikna með umferðartöfum þar frá klukkan 21:00 til 06:00 að morgni.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr
gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn á Snæfellsnesvegi (54) frá Borgarnesi og öllum vegum á Snæfellsnesi.