Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.3.2018

15.3.2018 6:43

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir. Eins er mikið autt á Vesturlandi en þar eru þó hálkublettir á köflum og á fáeinum vegum er hálka eða krapi. 

Það eru víða hálkublettir á láglendi á Vestfjörðum en sums staðar er eitthvað meiri hálka á fjallvegum. Upplýsingar um Steingrímsfjarðarheiði eru ókomnar.

Á Norðurlandi er mikið til autt austur í Skagafjörð en þar fyrir austan má búast við meiri vetrarfærð. Verið er að kanna færð á Norðurlandi eystra og Austurlandi.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Nýjar takmarkanir taka gildi núna klukkan átta. (Nánari upplýsingar í s. 1777.)

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.