Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.1.2019

15.1.2019 18:42

Færð og aðstæður

Yfirlit: Vetrarfærð er á öllu landinu og  um norðanvert landið er víða éljagangur og skafrenningur.

Suðurland: Hálka eða snjóþekja er á vegum.

Suðvesturland: Hálkublettir eru á Kjalarnesi og á Hellisheiði en hálka í Þrengslum. Snjóþekja er á Mosfellsheiði, Kjósarskarði og Þingvallavegi.  

Vesturland: Þar er hálka eða  snjóþekja á vegum og víða skafrenningur. Þæfingsfærð er á Laxárdalsheiði. Ófært er í Álftafirði.

Vestfirðir: Snjóþekja eða hálka á vegum og skafrenningur á fjallvegum. Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði og á Þröskuldum.

Norðurland: Þar er hálka eða snjóþekja á vegum og víða él eða snjókoma. Þæfingsfærð og skafrenningur er í Héðinsfirði. Ófært er á Siglufjarðarvegi og verður ekki opnaður í dag.

Norðausturland: Víða snjóþekja, hálka eða þæfingsfærð og éljagangur eða skafrenningur.

Austurland: Hálka eða snjóþekja á flestum leiðum og víða éljagangur. Ófært er á  Breiðdalsheiði og Öxi.

Suðausturland: Hálka er frá Höfn og í Vík og él á stöku stað.

Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/