Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.12.2017

14.12.2017 15:24

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. 

Færð á vegum

Það er vetrarfærð nánast um allt land, hálka eða hálkublettir - og snjóþekja á fáeinum vegum en víðast hæglætisveður og aðstæður til ferðalaga að því leyti góðar.

Varað er við flughálku á Hrafnseyrarheiði og Öxi er ófær.

Framkvæmdir

Í dag, miðvikudaginn 14. desember, er unnið  við að taka niður teinagirðingar á Reykjanesbraut á milli Sæbrautar og Bústaðavegar til suðurs.

Einnig er verið að setja upp vegrið á Vesturlandsvegi við Esjuberg á Kjalarnesi.

Hraði um vinnusvæðin er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.