Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 1.3.2018

1.3.2018 8:48

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi er víða hálka eða hálkublettir. Hálka og éljagangur er á Hellisheiði. 

Á Vesturlandi eru vegir á láglendi víðast hvar greiðfærir en hálkublettir eru á fjallvegum. Hálka er á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum eru vegir á láglendi nokkuð greiðfærir en hálkublettir á fjallvegum. Snjóþekja er á Þröskuldum. 

Á Norðurlandi er víða hálka eða hálkublettir. Éljagangur er í Ljósavatnsskarði og við Mývatn. Flughált er á Vatnsskarði.

Á Austurlandi er víða hálka eða snjóþekja. Hálka eða hálkublettir eru með suðausturströndinni. 

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í flestum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.