Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.11.2018
Færð og aðstæður
Suðurland: Það eru hálkublettir á Lyngdalsheiði.
Vesturland: Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Vatnaleið.
Norðurland: Flestir vegir auðir en þó er hálka á Öxnadalsheiði.
Norðausturland: Sumstaðar éljagangur og krapi eða hálka á vegum inn til landsins en autt með ströndinni.
Austurland: Snjóþekja og éljagangur á Fjarðarheiði en vegir annars greiðfærir.
Vinna við Sæbraut
Í dag er verið að malbika strætóútskot við
Sæbraut, til móts við Húsasmiðjuna. Áætlað er að vinnan standi til kl. 13:00. - Vegfarendur
eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Öxi lokuð um tíma í dag
Vegna viðgerða á brúnni yfir Hemru á Axarvegi (939) þarf að loka veginum í dag, frá kl 10:00 og fram eftir degi.
Umferðartafir við Svínafellsá í Öræfum
Vegna vinnu við endurbætur á brúnni yfir Svínafellsá í Öræfum má búast við talsverðum umferðartöfum allt að 40 mínútum í senn fram á fimmtudag. Umferð er stýrt með umferðarljósum i gegnum vinnusvæðið.
Þungatakmarkanir á Bíldudalsvegi (63)
Ásþungi er takmarkaður við 7 tonn á Bíldudalsvegi ( 63)
frá Hvassanesflugvelli ađ Helluskarði (gatnamót Vestfjarðavegar (60) og
Bíldudalsvegar).
Framkvæmdir á Grindavíkurvegi
Framkvæmdir standa yfir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa Lónsins. Verið er að breikka veginn og þarf á hluta framkvæmdatímans að mjókka hann töluvert. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.
Framkvæmdir á Esjumelum
Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.
Aukin þjónusta á Hrafnseyrarheiði
Vegna framkvæmda við Dýrafjarðargöng er tímabundið aukin vetrarþjónusta á Hrafnseyrarheiði en á Dynjandisheiði er minni þjónusta. Vegfarendur eru beðnir um að athuga færðarskráningu áður en lagt er af stað.
Hálendið
Engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.