Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.2.2019

12.2.2019 14:17

Ábending frá veðurfræðingi þriðjudaginn 12. febrúar kl. 08.30

Kröpp lægð fer í dag norður um vestanvert landið.  Varað er við sviptingum í vindi saman með snjó og krapa frá um kl. 11. Einkum á Snæfellsnesi, sunnanverðum Vestfjörðum,  Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og norður í land frá um kl. 11 og þar til síðdegis. 

Færð á vegum

Suðvesturland: Víða eru vegir greiðfærir en eitthvað um hálkubletti. Flughálka er á Kjósarskarði og á Grafningsvegi.

Vesturland:  Hálka og óveður er á Holtavörðuheiði. Hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum.  Flughálka er víða í uppsveitum Borgarfjarðar og á Laxárdalsheiði. Á Snæfellsnesi er flughálka er á mill Fróðárheiðar og Arnarstapa annars hálka, hálkublettir eða snjóþekja.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum og víða skafrenningur á fjallvegum.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Hálka og skafrenningur er á Öxnadalsheiði.

Norðausturland: Snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum. Hálka og skafrenningur á Vopnafjarðarheiði.  

Austurland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum. Hálka og skafrenningur er á Fjarðarheiði.

Suðausturland: Hálkublettir eru á öllum leiðum.  

Suðurland: Suðurlandsvegur er að mestu greiðfær en hálkublettir á útvegum.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/