Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.12.2017

12.12.2017 19:03

Vinna við Miklubraut

Í dag, þriðjudaginn 12. desember, er verið að taka niður öryggisgirðingar á Miklubraut: Unnið er frá Snorrabraut til austurs í átt að Lönguhlíð fram eftir degi. Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi eru víðast hvar aðeins hálkublettir en sums staðar er hált eða jafnvel flughált á einstaka vegi.

Nokkur hálka er á Vesturlandi, einkum á fjallvegum. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði.

Hálka og snjóþekja er á vegum á Vestfjörðum. Flughált er í innanverðu Ísafjarðardjúpi,  á Ströndum og vestan meginn í Hrútafirði. Ófært er yfir Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði.

Hálka eða hálkublettir eru flestum vegum á Norðurlandi og austur yfir öræfin.

Snjóþekja og skafrenningur er á Fjarðarheiði en hálka og éljagangur á Fagradal. Hálka og skafrenningur er  Vatnsskarð eystra. Á Austfjörðum og með suðausturströndinni er hiti ýmist í kringum núllið eða í plús og allvíða krapi eða hálka á vegum. Ófært er um Öxi.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.